Invader Zim og litli Girrrrrrr
Farfuglar
Brakandi snilld
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox

15.10.2006 10:22:35 / Fester

ÞETTA BLOGG HEFUR HÉR MEÐ LAGT UPP LAUPANA

GOTT FÓLK KÍKIÐ INN Á SAMEIGINLEGA SÍÐU MÍNA OG HLÍNAR

http://www.hlinj.bloggar.is/           


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 22:22:15 / Fester

Hann á afmæli í dag Hann á afmæli í dag Hann..........................................................

Hvernig væri nú að letidýrið skrifaði eitthvað á bloggsíðuna sína hmmmmmmmmm...... Vil óska Herr HUSBY til hamingju með daginn er nú búinn að leggja inn formlega beiðni á elliheimilinu á Egilsstöðum sem segja mér að plássið verði laust í kring um 2024 maður þarf að borga undir borð ef hann á að komast fyrr að þannig að ég hvet alla til að láta mig hafa pening fyrir þessu svo við losnum sem fyrst við hann PENINGA JÁ TAKK. (þetta hefur eitthvað með eldhúsrúllur og bleikt og blátt að gera).


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 18:24:25 / Fester

Hérna eru smá fréttir

Við Elva byrjuðum daginn á að horfa á teiknimyndir bara löt í sófanum sem er allt í lagi svona öðru hvoru. Í hádeginu skruppum við í klippingu þar sem hár sem náði niður á axlir fór í að vera rétt um eyrnasnepla Elva var rosalega dugleg og fékk hakkísakk bolta að launum. Skruppum svo til Guðnýjar systu og Bjarka litla tókum þau með okkur og fórum í ágætis ferð í kringluna þar sem manni leið eins og í öðru landi því það heyrist ekki íslenska nema hjá fimmta hverjum einstaklingi. Keyptum okkur kjúkling til að borða í kvöld og svo verður ís og súkkulaðisósa í eftirrétt. Dagurinn á morgun Iceage 2 á íslensku annars er dagurinn á morgun óráðinn þetta eru bara svona pælingar. Förum svo heim í sveitina um næstu helgi ásamt öllum í fjölskyldunni verðum frá föstudegi til mánudags því Elva verður í fermingu á Skírdag.

Lífið og tilveran í dag er blátt áfram og eins og segir í Madagascar " ÉG FÍLA DILLA DILLA" EÐA " I LIKE TO MOVE IT MOVE IT".

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.04.2006 15:01:11 / Fester

Helgardjamm

Jæja gott fólk þetta var eðalhelgi á föstudagskvöldið var haldið hérna lítið matarboð læri,kjúklingabringur og rauðvín Konni mætti Jolli bróðir og svo Hrefna og Unnur. Síðan var skrölt eitthvað um bæinn. Laugardagskvöldið var eðall byrjuðum að keila um hálfsjöleytið og keiluðum okkur í úrslitin (liðið okkar var skipað mér sjálfum Einari Inga Elmari og Sævari) kepptum þar við Jón,Konna,Sigga og Kristínu og höfðum sigur og þar með mættir í úrslitaleikinn sem við bjuggumst nú ekki við en mættum Reyni,Guðrúnu,Sveinbirni og Ásgeiri þar en höfðum ekki erindi sem erfiði og fjórða silfur skrifanda á þessu ári staðreynd það væri nú gaman að fá gull í einhverju 2.sæti pool,firmamót í knattspyrnu,innanhússmót Íslandspósts og svo keilan í gær svo var náttúrulega drukkið og djammað fram eftir öllu mér skilst að ég hafi verið skrautlegur en hver var það ekki. Núna er það bara rólegheitarsunnudagur horfa á boltann kveð ykkur að sinni hættur að drekka

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 21:59:23 / Fester

Klukkedíklukk

>Verið velkomin í næstu útgáfu af því að kynnast vinum ykkur,og ekki síður ykkur sjálfum með því að svara spurningunum. Þið eruð öll klukkuð mhahahahahahaha

Þú ættir þannig að læra ýmsar lítt þekktar staðreyndir um vini þína....

1. HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA?

2. EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI ÞAÐ?

3. GULL EÐA SILFUR

4. HVAÐ VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ?

5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN?

6. HVAÐ BORÐARÐU Í MORGUNMAT?

7. HVAÐ LANGAR ÞIG AÐ GERA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐINN STÓR?

8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI?

9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR?

>10. HVAÐ ER MIÐNAFNIÐ ÞITT?

>11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA

>12. SUMAR, VETUR, VOR EÐA HAUST?

>13. UPPÁHALDS ÍS?

>14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR Á POPP?

>15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN?

>16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN?

>17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU?

>18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ?

>19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTURÐU?

>20. UPPÁHALDSBLÓM

>21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI MYNDIRÐU BÍÐA
ÁÐUR EN ÞÚ SEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ?

>22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN?

>23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN?

>24. HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI?

>25. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI?

>26. GETURÐU JÖGGLAÐ?

>27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR?

>RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN?

>29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI?

>30. ERTU MEÐ LÍFFÆRAGJAFAR KORT?

>31. HVORT MYNDIRU VILJA EIGNAST STRÁK EÐA STELPU?

>32. HVAÐ KEMUR ÞÉR Í GÍRINN?

>33. ERTU FEMINSTI?

>34. FLOTTASTI LÍKAMSHLUTINN Á HINU KYNINU?

>35. ELSKARÐU EINHVERN?

>36.SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM KLUKKAÐI ÞIG:



» 4 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 22:42:30 / Fester

heeellllllllllllllloooooooooooooooooooooo

Kominn tími til að hripa eitthvað í þessa dagbók fyrst maður er nú orðinn netvæddur hérna heima fyrir.

Við búum á Freyjugötunni sem er by the way eðalstaður það eru hnökrar á húsnæðinu en við dundum við að koma á framfæri ábendingum fyrir betri úrlausnir sem sagt hundleiðinlegir leigjendur.

Það er keila um næstu helgi fínasta fyllerí og eitthvað fleira skemmtilegt vorum að keppa líka í firmakeppni í fótbolta fyrr í mánuðinum og enduðum í 3.sæti.

Stefnan í sumar Hvannadalshnúkur útlönd og fleiri fjöll hvort ég stend við eitthvað af þessu skal ósagt látið Vestfirðir eru líka á stefnuskránni geri þetta bara allt saman.

Langaði bara að segja ykkur gott fólk að ég er kominn aftur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 01:11:55 / Fester

Er sko að flytja

Að öllum líkindum verður maður tölvulaus í nokkra daga ekki að það skipti neinu máli þar sem ég er óhugnalega latur að blogga finn bara ekki fyrir "andanum". En já ég og David Hustlerby erum að fara búa saman fékk að vita þetta um áttaleytið í kvöld og þá var maður löngu hættur að vona.

Er búinn að standa á haus síðan að pakka öllu sem ég á til að flytja í nýja húsnæðið á morgun best að halda áfram. Nýja adressan Downtown arena.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 23:26:47 / Fester

Ég var klukkaður

Fjögur störf sem ég hef starfað um ævina:

SS pylsugerðarmaður vitið þið hvað er í þeim

Eden steikja hamborgara

Ísfélag Vestmannaeyja að slá úr pönnum

Pósturinn hvað hef ég ekki gert innan póstsins

 

Fjórar myndir sem ég get horft á aftur og aftur:

Boondock Saints

Little Nicky

Gladiator

Underworld

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Sveitin 880

Álftanes 225

Kleppsvegur 104

Klapparberg 111

 

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi á:

Threshold

Lost

Threshold

Veðurfréttir

 

Fjórir staðir sem ég hef farið í frí:

Grænland

Skotland

Danmörk

Svíþjóð (lestarferð frá danaveldi til að fá sér pizzu hjá svíum)

 

Fjórar heimasíður sem ég heimsæki daglega:

barnaland.is/barn/5224

mbl.is

textavarp.is

rassgat.net

 

Fjórar uppáhalds matartegundir:

Grjónagrautur og slátur

Nýveidd bleikja grilluð

Flatkökur með rúllupylsu

Humar

 

Fjórir geisladiskar sem ég get ekki verið án:

Hera - don`t play this

Múm - loksins erum við engin

Moby - Play

Dido - No Angel

 

Fjórir staðir sem ég vildi frekar vera á:

Nýju ímynduðu íbúðinni minni

Sveitin

Land sem ég hef ekki heimsótt

Presintera hinar nýju víddir sem er samlagðar okkar heimi

 

Fjórir bloggarar sem ég ætla að klukka:

Held bara að ég geri engum þennan óleik


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 20:26:56 / Fester

VISSUÐ ÞIÐ AÐ

Van Gogh lést 1890



en hann var snillingur.


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 21:09:54 / Fester

LJÓÐASYRPA DAGSINS

Þú ert aldrei stundvís snót

Snuðra þarftu víða.

Þér ég býð með böllin mót

Búinn til að ríða

 

 



Kuntu loðna láttu í

Lókinn snoðna troðast

Mun hann roðna þá af því,

Þrútna, soðna og hnoðast.

 

 



Þorbjörg hýsti Bjarna böll

Brundið gnýstist seims á þöll

Mjög varð klýstrug hórdómshöll

Hljóp í blístur kuntan öll.

 

 



Fór ég á hana fast og vel

Fossaði úr mér brundið

Slíka kuntu í Ísrael

Aldrei hefi ég fundið


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 21:51:49 / Fester

Að vera eða vera ekki Fullorðinn

Var að keyra dóttur mína heim til sín eftir hreint frábæra helgi við keyrðum framhjá húsum sem ekki var búið að taka jólaskrautið af þá heyrist í minni "Jæja þetta er nú meira fólkið það er ekki ennþá búið að taka niður jólaskrautið, það er nú ekki nógu gott" og í svo beint yfir í "pabbi viltu hækka í útvarpinu svo að ég heyri söguna" 102,2 alltaf sögustundir kl:20:00 börnin okkar verða aldrei annað en mesta snilld sem um getur í þessu lífi. Þetta minnti mig á þessa auglýsingu við erum jú fyrirmyndin http://kvikmynd.is/myndband.asp?id=1469

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.01.2006 11:00:47 / Fester

IDOLIÐ

Maður getur vart orða bundist yfir mesta gamanþætti veraldar “American Idol” veit ekki hvernig fólk getur verið svona veruleikafirrt að halda að það geti sungið á köflum. Hef oftar en ekki heyrt að Simon  sé algjört svín og hendi öllum út og sé vondur við alla ef maður væri í hans sporum ég er viss um að maður myndi gera það sama bara af því að það þarf virkilega að koma sumu fólki niður á jörðina ég myndi t.d. ekki reyna mig í Idol vegna þess að ég kann ekki að syngja. Paula hmmmmmmmmmm strákarnir sumir vissu hvernig átti að heilla hana hún er jú fyrir yngri menn vissi svo sem ekki hvernig málið endaði með hana þarna úti ég er samt eiginlega viss um að hún svaf hjá fleiri en einum. Randy veit varla hann er jafnvægið eða eitthvað. Það er verið að tala við 2 gaura annar kallar sig Flawless og hefur einstakt dálæti á fötum eiginlega náttfötum söngur ekki til að tala um hinn gaurinn er með 5 einkaleyfi og segist geta allt en söngur hann var stoppaður áður en hann gat sungið “góða” kaflann vá þettta er endalaust fyndið.

Talandi um náttföt hvað er þetta með fólk gangandi um á teinóttum náttfötum og inniskóm er fólk orðið svona þreytt að það nennir ekki að skipta um föt eða er þetta bara INN í dag, ég verð víst bara að játa það að ég skil ekki tísku. Tíska gengur í hringi þannig að líklega er hippatískan að komast í hærri hæðir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 23:10:37 / Fester

Störf í boði

Topp 5 störf sem ég vil ekki prófa:

#1 Elliheimili (bara gæti hvorki baðað eða skeint gömlu fólki)

#2 1818 (g´ðan get ég aðstoðað allan daginn)

#3 Þingmaður (fyrir utan frí og fríðindi)

#4 Þjálfari Liverpool (ég er alltaf rekinn frá þeim í Champanum)

#5 Tölvuviðgerðarkall (skil ekki tölvur og þær ekki mig)

Hvað er ykkar topp 5??


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.01.2006 22:50:02 / Fester

Hákarl og brennivín

Bóndadagurinn var í dag sem er fyrsti dagur í Þorra og núna er kominn miður vetur samkvæmt tímatalinu, þó veðrið úti segi okkur að veturinn sé bara nýbyrjaður. Þegar að Þorrinn hefst þá fær fólk þá grillu í höfuðið að borða skemmdan mat alveg í bak og fyrir, af þeirri ástæðu einni að það telst þjóðlegt “við erum svo skrýtin þjóð” ég er ekki á móti Þorranum eða matnum sem honum fylgir maginn minn sér alveg um þá hliðina of mikil sýra í minn maga og hann bara skilar þessu “hann veit hvað hann vill”. Væri samt til í góðan skyrhákarl núna og íslenskt brennivín þannig að ég er líklega bara einn af öllum þessum vitleysingum sem vill vera þjóðlegur af og til aðallega til að sjokkera útlendinga.

Gleðilegan Þorra öllsömul


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2006 13:51:51 / Fester

Tilgangur Eðli Guð

Ég tel að ef maður hefði hvorki tilgang né eðli hvað þá ástæðu til að trúa á eitthvað yfirnáttúrulegt til að útskýra hið óútskýranlega þá værum við hin fullkomna “mannvera” (geimvera) eða við værum ekki neitt.

Það er náttúrulega spurning hvort við værum eitthvað ef við hefðum ekki tilgang eða eðli

(ég tel að við þurfum guð ekkert sérstaklega) værum við þá bara ekki hálf vélræn fyrirbrigði sem myndu líða áfram, hvert og eitt á póstmódernískan hátt, við værum við sjálf.

Þetta er fullkomið líf og enginn stjórnar manni hvorki raunverulegur né óraunverulegur, maður myndi svara öllum sínum spurningum sjálfur ”nei annars” maður þyrfti ekki að spyrja spurninga því maður hefur ekki  tilgang og ekki eðli og engan guð, við hljótum að vera búin að nálgast það stig fullkomnunar að spurningar eru óþarfar við vitum það sem þarf að vita.

Ég myndi segja að ef maðurinn ætti sér ekki tilgang ekkert eðli og ekki er guð þá getur maður ekki bara búið sér tilgang því þá er maður orðin þversögn í samfélaginu og í flestum tilfellum er eitthvað gert til að hreinsa út þesslags “hluti. Það má líka hugsa þetta á þann hátt að ef þessi þversögn verður þá ætti náttúrulega öllum hinum að vera bara slétt sama  út af því að þeirra lífsskoðun er byggð upp öðruvísi. Hver og einn þarf því enga sérstaka lífsfyllingu því samfélagið er svo fullkomið að hún er óþörf. Það þýðir ekki fyrir okkur að sjá þetta út frá jarðarlegu sjónarhorni því jarðarbúar eru að stórum hluta hálf klikk. Ef ég væri nú geimvera sem væri orðin þversögn í mínu samfélagi og refsingin ætti að vera lífstíðarvist á jörðinni þá gætu allir mótmælt því en enginn sannað það eða afsannað þess vegna verðum við bara að líða áfram í þeirri trú að ég hafi fæðst á jörðinni.

 

 



 

 

Póstmódernismi:

Hér að framan var minnst á risa sem stendur beint fyrir framan okkur (ekki í beinum orðum heldur sem geimverur) og hvernig mynd okkar af honum er ekki mynd af alheiminum í heild sinni heldur aðeins hluta hans. Þessi líking getur átt við mynd okkar af hugtakinu póstmódernismi. Það er of stórt, of nálægt og á of mikilli hreyfingu til þess að hægt sé að svara spurningunni: Hvað er póstmódernismi? með góðu móti.
En kannski felst vísir að svari í þeirri samræðu um nútímann sem hugtakið póstmódernismi hefur óneitanlega stuðlað að, samræðu sem kann að vekja fólk úr roti þægindanna á öld góðæris. Samræðan sem póstmódernisminn hefur skapað felur nefnilega í sér áminningu um að heimurinn er miklu stærri, fjölbreyttari og flóknari en það brot sem blasir við í glansmyndum hagræðingar og samruna þeirra landa sem kalla sig þróuð og tæknivædd. Hafi módernismi, segja líka sumir, markast af hruni nýlenduríkja og kalda stríðinu (austur-vestur ás) markist póstmódernismi af norður-suður togstreitu.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan